Viltu vera í öflugu liði Norðuráls?

Norðurál er eftirsóttur vinnustaður. Starfsmenn eru ríflega 500, verkefnin margvísleg og störfin fjölþætt. Hjá fyrirtækinu starfar fjöldi sérfræðinga með fjölbreytta menntun, iðnaðarmenn og ófaglærðir starfsmenn sem öðlast dýrmæta sérhæfingu við störf sín og nám hjá fyrirtækinu.

 

Ráðningarferli

Ráðningarferli Norðuráls felst í því að umsóknir eru metnar og hæfum umsækjendum er boðið í viðtal. Síðan leitum við umsagna hjá a.m.k. tveimur umsagnaraðilum sem umsækjandi gefur upp. Þar sem Norðurál er vímuefnalaus vinnustaður er þess jafnframt krafist að allir starfsmenn sem Norðurál vill bjóða starf taki lyfjapróf sem framkvæmt er af óháðum heilbrigðisstarfsmanni. Umsóknum um auglýst störf er svarað sérstaklega þegar ráðningu í starfið er lokið. 

 

Umsóknarfrestur vegna sumarafleysinga rann út 29. janúar.
Nánari upplýsingar veita Helga Björg Hafþórsdóttir, fulltrúi á mannauðssviði og Borghildur K. Magnúsdóttir, deildarstjóri ráðninga, í síma 430 1000
Hér er einungis átt við vélvirkja og rafvirkja. Umsækjendur með aðra iðnmenntun vinsamlegast fyllið út almenna umsókn.
Nánari upplýsingar veita Helga Björg Hafþórsdóttir, fulltrúi á mannauðssviði og Borghildur K. Magnúsdóttir, deildarstjóri ráðninga, í síma 430 1000
 
Allt efni © Norðurál ehf.