Vinnutími og vaktatöflur
Hér má nálgast vaktatöflur fyrir kerskála og steypuskála. Bæði í pdf skjalasniði og Excel töflusniði.
Vaktatafla 2012 í PDF sniði.
Vaktatafla 2010-2012 í Excel sniði.
Vinnutími
Kerskáli og Steypuskáli
Í kerskála og steypuskála er unnið á 12 tíma vöktum. Dagvaktir eru frá kl. 07:30 til 19:30 og næturvaktir frá kl. 19:30 til kl. 07:30. Hver vaktalota er 4-5 dagar í senn og 4 til 5 dagar í helgarfrí. Tvö 5 daga helgarfrí eru í hverjum mánuði. Hér má sjá vaktatöflu.
Skautsmiðja
Í skautsmiðju er unnið á 8 tíma vöktum og skv. breytilegu vaktafyrirkomulagi (Time Care). Starfsmenn leggja inn óskir um vaktir og kerfið sér síðan um að úthluta þeim í samræmi við óskir starfsmanna (eftir því sem kostur er á). Dagvaktir eru frá kl. 07:30 til 15:30, kvöldvaktir eru frá kl. 15:30 til 23:30 og næturvaktir eru frá kl. 23:30 til kl. 07:30.
Kersmiðja
Í kersmiðju eru dag- og kvöldvaktir. Dagvaktir eru frá kl. 07:30 til kl. 16:00 og kvöldvaktir eru frá kl. 16:00 til 00:30. Unnið er til skiptis heila viku á dagvöktum og kvöldvöktum og frí um helgar.
Dagvinnustörf
Dagvinnutíminn er frá kl. 7:30 til 16:00 virka daga og frí annan hvern föstudag.
Ál fyrir ástina
Jón er huggulegur húsfaðir. Áður en Gunna kemur lúin heim úr vinnunni, er hann búinn að steikja lambakjöt á pönnu, baka kartöflur í ofni, sjóða grænmeti og töfra fram girnilega formköku í eftirrétt. Krásunum mun Gunna skola niður með svaladrykk sem okkar maður hefur hellt fagmannlega úr dósinni í glas á borðstofuborðinu. Jón hefur líka kveikt á sprittkertum og rétt áður en eiginkonan dettur inn úr dyrunum, skrúfar hann frá græjunum og stemningin er fullkomnuð.
Hvað ætli téðar athafnir Jóns á þessu fimmtudagskvöldi eigi sameiginlegt? Jú, fyrir utan að sýna umhyggju hans fyrir frúnni og tilþrif við eldamennskuna, gerðu allar það að verkum að hann komst í snertingu við ál. Hann notaði álpönnu við steikinguna, bakaði kartöflurnar í álpappír, gufusauð grænmetið í álpotti og kökuformið var úr áli. Þannig getur ál komið ótrúlega of við sögu daglegu lífi okkar, það er hreinlega út um allt. Heimilið er vitaskuld engin undantekning en álið á fáa keppinauta þegar kemur að umbúðum um mat, drykk og fleira af því tagi, enda eru álumbúðir fyrirferðarlitlar, léttar og sterkar og öll þekkjum við hve handhægt er að grípa til álpappírs og álbakka þegar grillað er. Þá eru rafeindatæki og búsáhöld úr áli algengari en margur gerir sér grein fyrir. Álið er potturinn og pannan.