Fræðsla og starfsþróun

Starfsþróun og fræðsla eru lykilþættir til þess að tryggja starfsmönnum Norðuráls hæfni sem er til fyrirmyndar í áliðnaði og fyrirtækinu til hagsbóta. Hjá fyrirtækinu er lögð áhersla á lifandi og metnaðarfullt fræðslustarf.  Árið 2009 tóku starfsmenn þátt í um það bil 18.000 kennslustundum og er stefnan að viðhalda þessum góða árangri á næstu árum. Námskeið eru oft löguð að þörfum starfsfólks og þegar hægt er eru þau haldin á vinnustaðnum þar sem starfsfólk getur sótt þau á vinnutíma. 
 
Þörf starfsmanna fyrir þjálfun og starfsþróun er metin árlega í samræmi við metnað og hæfni einstaklingsins og þarfir fyrirtækisins. Almennt gildir sú regla að yfirmenn sviða og deilda og fræðslustjóri skipuleggja fræðslustarf (í samráði við framkvæmdastjóri hvers svið) hvort heldur sem er innan eða utan fyrirtækisins og er allt fræðslustarf háð fyrirfram samþykki þessara aðila.

  

Ál kemur víða við sögu.

Ímyndum okkur björgunarsveitarmenn sem halda til æfinga upp á hálendið að vetrarlagi. Í snjósleðunum, sem flytja þá að jökulrótum, er til dæmis ál í vélarblokkinni og í burðargrind sleðans eru einar 5 mismunandi áltegundir. Ál er einnig í farsímum, bakpokum, eldunarbúnaði og ísöxum fjallagarpanna og ekki má heldur gleyma öryggisbúnaði á borð við álskóflur, snjóflóðaleitarstangir og mannbrodda úr áli. Þá eru ótaldar öryggislykkjur úr áli sem gegna lykilhlutverki í klifurbúnaði þeirra félaganna.

Allt gengur vel uns einn göngugarpanna verður fyrir því óláni að brotna á fæti. Félagarnir veita honum góðan umbúnað og klæða hann í álpoka til að halda á honum hita í jökulkuldanum. Því næst leggja þeir hann á sjúkrabörur úr áli og vel kemur sér að hafa verkjalyf við höndina í loft- og rakaþéttum álumbúðum. Við komuna til byggða er hinn slasaði fluttur á slysadeild til skoðunar. Þar fer hann í myndatöku og kynnist einu af fjölmörgum lækningatækjum sem eru að hluta úr áli. Sem betur fer kemst söguhetjan fljótlega á ról og þá er nú gott að hafa hækjur úr áli til halds og trausts.

 

Allt efni © Norðurál ehf.