Notkun áls
Notkun áls hefur vaxið jafnt og þétt undanfana áratugi og eru möguleikarnir margvíslegir. Stærstur hluti þess áls sem framleitt er fer í farartæki, byggingar og umbúðir.. Eftirspurn eftir áli meðal farartækjaframleiðenda hefur aukist vegna þess að styrkur miðað við þyngd þess dregur úr orkunotkun og þar af leiðandi úr mengun. Óhugsandi væri að smíða flugvélar sem gætu borið meir en 30 manns úr öðrum efnum heldur en áli og/eða trefjaefnum. Einnig væri erfitt að smíða háhraðalestir úr stáli einvörðungu. Þumalputtareglan er: Að fyrir hvert 1kg af áli sem er skipt út gegn vanalegu efni í farartæki má spara 20kg af koldíoxíði á meðallíftíma farartækisins.
Varðandi byggingar þá hefur ál verið í framrás síðustu 40 árin vegna þess hve tæringarþolið það er, ásamt því hve auðvelt er að húða það þannig að húðin haldist út líftíma hlutarins. Það hefur heldur ekki skaðað hversu auðvelt er að móta það við tiltölulega lágan hita.
Þá er ál einnig vinsælt efni í umbúðum vegna þess hversu sterkt það er, gagnsæi ekkert, og hversu auðvelt er að endurvinna það.
Ál má endurvinna á tiltölulega auðveldan máta með endurbræðslu. Endurbræðslan á sér stað við hitastig í kringum 700°C í samanburði við 1500°C fyrir stál. Við endurvinnslu þarf álíka orku til að bræða upp 1 tonn af áli og 1 tonn af stáli en hafa ber í huga, að einungis þarf 0,5 tonn af áli á móti 1 tonni af stáli til þess að hljóta sama styrk. Því mun álið á endanum ávallt hafa vinninginn yfir heildarkolefnisfótspor hvernig sem það er unnið.
Sem dæmi um hversu þrautseigt og endingargott álið er má nefna, að 70% af öllu áli sem framleitt hefur verið frá upphafi er enn í notkun og eru um 8% af öllu áli sem er á heimsmarkaði er endurunnið ál. Endurvinnsla á áli er einkar hagkvæm þar sem einungis þarf um 5% af orku þeirri sem þarf til þess framleiða ál úr súráli!
Skipting notkunar á áli eftir flokkum.
– Farartæki 26%
– Umbúðir 20%
– Byggingar 23%
– Leiðarar 9%
– Annað (s.s. húsgögnraftæki ofl.) 22%
Ál sem er framleitt hjá Norðuráli er selt á heimsmarkaði sem hráál og til frekari vinnslu en ekki notað í neinar afurðir ómeðhöndlað. Hreint ál hefur ekki styrk á við stál eitt og sér heldur þarf að bæta þar við málmum eins og kopar, sínki og magnesium til þess að fá styrkinn fram og kallast þá melmi (á ensku: alloy). Álið sem er framleitt hjá Norðuráli er mjög hreint og nýtist því nánast í öll melmi þ.e. frá melmum fyrir gosdósir upp í melmi fyrir geimflaugar.