Nám í stóriðju

Norðurál vill bæta árangur í rekstri og auka hæfni ófaglærðs starfsfólks og iðnaðarmanna með því að bjóða upp á nám í stóriðju. Þeir sem ljúka stóriðjunáminu munu öðlast meiri starfsánægju og sjálfstraust með aukinni færni, þekkingu og skilningi á lykilferlum við örugga og hagkvæma framleiðslu á áli. Aukin þekking starfsfólks mun svo aftur stuðla að skilvirkari framleiðslu, öruggara vinnuumhverfi, bættri stjórnun, gagnkvæmum skilningi og aukinni samvinnu. Jafnframt munu samskipti aukast og batna með samræðum og samvinnu milli ófaglærðs starfsfólks og stjórnenda í álverinu. Starfsfólk sem lýkur náminu mun verða fyrirmynd annarra starfsmanna og mun þannig líka hafa óbein áhrif á hæfni þeirra.

 

Við val á starfsfólki til þátttöku í náminu verður horft til starfsferils og frammistöðu viðkomandi.

Tilgangur námsins er að auka verðmætasköpun og styrkja samkeppnisstöðu fyrirtækisins, bæta öryggi við vinnu, efla starfs- og samskiptahæfni starfsmanna, auðvelda innleiðingu breytinga, ýta undir starfsánægju og gera vinnustaðinn eftirsóknarverðari. Í náminu er lögð áhersla á að námsmenn læri að læra, afla og miðla upplýsingum og efli sjálfstraust sitt og lífsleikni.

 

Allt efni © Norðurál ehf.