Stóriðjunám er viðurkennt nám hér á landi. Náminu er skipt upp í grunnám (sem gefur 34 framhaldsskólaeiningar) og framhaldsnám (sem gefur 44 framhaldsskólaeiningar).
„Nám í stóriðju“ hefur þróast undanfarin ár í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Mennta- og menningarmálaráðuneytið. Vorið 2011 birti Fræðslumiðstöð atvinnulífsins viðurkennda námsskrá fyrir þetta nám í fyrsta skipti með það að markmiði að koma á fót stöðluðu námi sem hentar starfsmönnum stóriðjufyrirtækja.