Námið er byggt á frammistöðu og ábyrgð einstaklings sem og samvinnu og samábyrgð allra sem koma við sögu þess. Námsárangur er ekki aðeins vitnisburður um frammistöðu og metnað einstaklings heldur einnig vitnisburður um aðstæður til náms og árangur af samvinnu námsmanna og leiðbeinenda. Námsmenn gangast ekki undir formleg próf og ekki eru gerðar kröfur til lágmarksskólagöngu áður en grunnnám hefst.
Allan undirbúning og framkvæmd stóriðjunámsins á að miða að því að auðvelda starfsmönnum nám. Nauðsynlegt er að hafa í huga að námsmenn eru á misjöfnum aldri, hafa misjafna lífsreynslu, læra með mismunandi hætti og þurfa til þess mislangan tíma. Vægi og innihald námsþátta verður því að laga að nokkru leyti að þörfum þeirra. Kennslan fer fram á íslensku en leiðbeinendur munu skýra mál sitt á ensku ef þess er sérstaklega þörf. Mikil áhersla er lögð á að leiðbeinandi og námsmaður fari sem oftast yfir það sem hefur áunnist. Leiðbeinandi á að hafa færni til að meta árangur námsmanna án þess að nota hefðbundin próf, en mun í stað þess meta námsferlið, nota símatsaðferðir og gefa skýrslu um niðurstöður.