Stóriðjunámið skiptist annarsvegar í grunnnám og hinsvegar framhaldsnám. Hver kennslustund er 50 mínútur. Grunnnámið er 358 kennslustundir. Framhaldsnámið er 462 kennslustundir. Mennta- og menningarmálaráðuneytið hefur samþykkt að meta megi grunnnámið til allt að 34 eininga styttingar á námi í framhaldsskóla og framhaldsnámið til allt að 44 eininga styttingar.
Grunnnámið er ætlað þeim sem hafa aflað sér verklegrar reynslu og þekkingar í stóriðju og vilja bæta við sig fræðilegri undirstöðu. Námið gefur faglega yfirsýn og því má segja að þeir sem það stunda verði fagmenn á sviði stóriðju. Með náminu er gert ráð fyrir að nemendur öðlist þekkingu á framleiðsluferlum og sérhæfðum vinnubrögðum við þessi ferli og færni til að mæla, meta og greina fjölbreytilega þætti í stóriðju. Ennfremur eiga þeir að geta unnið sjálfstætt og í samvinnu við aðra enda er mikil áhersla lögð á ábyrgð hvers og eins og hæfni til samvinnu í margbreytilegu hópstarfi, auk þess sem hver nemandi þarf að öðlast færni í að setja upplýsingar skýrt og skipulega fram. Loks er með grunnnáminu lögð áhersla á umhverfis-, heilsu- og öryggismál starfsmanna.
Framhaldsnámið er fyrir starfsmenn sem vilja bæta enn betur þekkingu sína á framleiðsluferlum í stóriðju og efla leiðtogahæfileika sína. Markmið námsins er því að auka færni nemenda til að gegna lykilhlutverki í hópstarfi og breytingaferlum og rækta hjá þeim frumkvæði og sjálfstæði við mikilvæga ákvarðanatöku innan fyrirtækisins. Einnig stuðla að auknu samstarfi starfsmanna, auka menntunar- og starfsþróunarmöguleika þeirra og auka samkeppnisforskot fyrirtækisins í ört vaxandi samkeppni.
Nánari lýsingu á námsþáttum og lýsingu og útfærslu á grunnnámi og framhaldsnámi í stóriðju má sjá í Námsskrá um nám í stóriðju, sem gefin er út af Fræðlumiðstöð atvinnulífsins.