Ferðastefna Norðuráls

 

Verum til fyrirmyndar á ferðum okkar!

Norðurál leggur áherslu á að starfsmenn sem aka bifreiðum fyrirtækisins hafi öryggi ávallt í fyrirrúmi, fari eftir umferðarlögum og séu til fyrirmyndar í umferðinni.  Jafnframt er lögð áhersla á að starfsfólk fari vel með þau farartæki og búnað sem því er treyst fyrir og sjái til þess að þau fái viðhald, séu áreiðanleg og endist vel og lengi.

Á vegum úti fær starfsfólk tækifæri til að hafa áhrif á ímynd fyrirtækisins. Með því að hafa öryggi alltaf í fyrirrúmi, fara eftir umferðarlögum og sýna öðrum ökumönnum tillitsemi er ýtt undir jákvætt viðhorf annarra til fyrirtækisins og starfsmanna þess.

 

Ferðastefnu Norðuráls í heild sinni er að finna á innra neti fyrirtækisins og er það á ábyrgð allra starfsmanna að fylgja stefnunni og stuðla þannig að öryggi og vellíðan á vegum úti.

 

 

Bílamál

 

Starfsfólk Norðuráls er búsett í þéttbýli og dreifbýli í nágrenni Grundartanga og á höfuðborgarsvæðinu og kemur til vinnu í rútum eða farþegabifreiðum Norðuráls, á eigin bifreiðum, vélhjólum eða reiðhjólum.

 

Starfsfólk sem búsett er á Akranesi, í Borgarnesi og á höfuðborgarsvæðinu á kost á endurgjaldslausum ferðum til og frá vinnu. Ef starfsfólk, vegna búsetu við ráðningu, getur ekki nýtt sé þessar hópferðir er notast við önnur úrræði eftir samkomulagi og í samræmi við gildandi kjarasamninga.

 

Starfsmenn geta fengið afnot af bifreiðum Norðuráls, er þeir þurfa að sinna vinnuerindum eða fundum utan vinnustaðar.

 

 

Norðurál

Samfélagsleg ábyrgð

Norðurál axlar þá samfélagslegu ábyrgð sem hvílir á stórum vinnuveitanda. Fyrirtækið mun vinna kröftuglega að því markmiði að viðhalda og efla samskipti við starfsmenn, nágranna, tengda hagsmunaaðila og þjóðfélagið í heild. Stuðningur við fyrirtækið er mikill og víðtækur í samfélaginu og fyrirtækið vill á gagnkvæman hátt styðja við góð málefni.

 

Skráð í kauphöllinni

Norðurál Helguvík sf er hluti af Norðuráli ehf sem er í eigu Century Aluminium Company en það félag er skráð í OMX Kauphöll Íslands. Century Aluminum hefur reynst farsæll fjárfestingarkostur og átt góðu gengi að fagna í kauphöllinni.

Allt efni © Norðurál ehf.