Fimmtudaginn 5. janúar var Stóriðjuskóli Norðuráls settur í fyrsta sinn á Grundartanga.
Íslandsmeistararar í fyrstu deild karla 2011
Opinn Umhverfisfundur verður haldinn að Hótel Glym í Hvalfirði fimmtudaginn 7.apríl kl. 13:00. Á fundinum verða kynntar niðurstöður umhverfisvöktunar fyrir iðnaðarsvæðið á Grundartanga.
Eins og fram hefur komið í kjölfar frétta um díoxínmengun frá sorpbrennslum, hyggst Umhverfisstofnun hefja mælingar á díoxín í jarðvegi í nágrenni mögulegra uppsprettna hérlendis. Þar eru álver tilgreind sem mögulegar uppsprettur. Í þessu sambandi vill Norðurál taka fram að engar fræðilegar forsendur eru fyrir því að starfsemi álversins á Grundartanga geti valdið slíkri mengun. Til þess að díoxínsambönd myndist þurfa ákveðin skilyrði að vera fyrir hendi: kolefni, vatn, hiti á bilinu 600-1300°C og síðast en ekki síst klór eða klórsambönd. Við framleiðslu Norðuráls á áli með rafgreiningu er ekki hætta á díoxínmengun, vegna þess að þar vantar einn af grunnþáttunum sem þarf til myndunar á díoxíni þ.e. klórinn. Við framleiðslu Norðuráls er hvorki notaður klór né nein klórsambönd.
Gerist það að þessi efni myndist vegna snefilmagns af klór í hráefnum eru þau fönguð í reykhreinsivirkjum og hringrásast innan rafgreiningarkerfisins.
Díoxín eru samansafn þrávirkra efna sem myndast í mjög litlu magni í náttúrunni. Þau myndast meðal annars við ófullkominn bruna á jurta- eða dýraleifum en einnig af mannavöldum vegna bruna á eldsneyti við viss skilyrði og sérstaklega við brennslu á sorpi. Efnin eru þrávirk þar sem þau eru illniðurbrjótanleg og safnast því fyrir í náttúrunni. Þessi efnasambönd eru einnig óvatnsleysanleg þannig að samansöfnunin á sér aðallega stað í mold og í fituvef plantna og dýra.
Á dögunum barst fyrirspurn frá Foreldrafélagi Brekkubæjarskóla á Akranesi þess efnis hvort Norðurál gæti hugsað sér að styrkja krakka í 7. bekk sem voru að leita ráða til að komast í námsferð án mikils tilkostnaðar. Það varð að samkomulagi að krakkarnir mundu tína rusl á opnum svæðum í bænum s.s. við dvalarheimili aldraðra og sambýli auk fleiri staða. Þessir duglegu og framtakssömu krakkar skrifuðu síðan skýrslu um þetta verkefni sem lesa má hér
Búið er að setja á vefinn myndband af fjölskylduhátíðinni sem haldin var 12. Júní síðasliðinn. Myndbandið er klippt á lagið Ligga ligga lá sem er á nýútkominni plötu Gunna og Felix. En þeir voru einmitt kynnar á hátíðinni okkar. Færum við þeim bestu þakkir fyrir að fá að nota lagið á þessi myndbrot. Myndbandið má skoða með því að smella hér.
Laugardaginn 12. júní síðastliðinn var fjölskylduhátíð Norðuráls haldin á Grundartanga. Þar var boðið upp á skemmtun og veitingar við allra hæfi. Samkvæmt talningu í hliði voru gestir ríflega 900, þar af 355 börn. Þrátt fyrir að veðrið hefði getað verið betra var sannarlega sól í Hvalfirði þennan dag. Eins og sést á brosum gesta í myndasyrpunni hér