Norðurál verður aðalstyrktaraðili knattspyrnufélags ÍA
 |
| Ungir skagamenn við keppni á Varmárvelli |
Gísli Gíslason, formaður Knattspyrnufélags ÍA, Jóhanna Hallsdóttir, varaformaður félagsins, Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, og Sandra Margrét Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Norðuráli, undirrituðu í dag samkomulag um að Norðurál verði aðalstyrktaraðili Knattspyrnufélags ÍA næstu þrjú árin. Samstarfið tekur til starfsemi allra knattspyrnuflokka kvenna, karla og barna innan vébanda félagsins.
Ragnar Guðmundsson segir fara vel á því að Norðurál styðji við íþróttalíf á Akranesi enda sé um að ræða góða granna Norðuráls á Grundatanga. „Við hjá Norðuráli sækjum margt til Akraness, fjölmargir starfsmanna okkar og verktaka eru þaðan, auk þess sem við kaupum þaðan ýmis aðföng og þjónustu. Svo getur maður auðvitað ekki annað en dáðst að glæstri sögu þessa merka knattspyrnufélags enda er það er von okkar hjá Norðuráli að samstarfið skili sér í enn fleiri ánægjustundum, öflugu æskulýðsstarfi og árangri þeirra sem iðka knattspyrnu á Skaganum.“
Gísli Gíslason fagnar samkomulaginu. „Norðurál hefur sýnt sig í að vera mjög mikilvægt fyrirtæki fyrir okkur Skagamenn. Það má kannski segja að starfsemi Norðuráls á Grundartanga sé svipaður burðarás í atvinnulífinu hér eins og knattspyrnan hjá ÍA er burðarás íþrótta- og tómstundastarfs. Tilkoma Norðuráls hleypt nýju lífi í byggðarlögin hér á svæðinu eftir kyrrstöðu mörg ár á undan og ég vænti þess að samstarfið við Norðurál á knattspyrnusviðinu verði ekki síður uppbyggilegt og uppörvandi.”
Mikill fjöldi iðkar knattspyrnu hjá ÍA og á Akranesi er aðstaða til knattspyrnu með því besta sem þekkist á Íslandi. Miðstöð íþrótta er á Jaðarsbökkum, þar sem finna má m.a. hina glæsilegu fjölnota Akraneshöll, aðalleikvang bæjarins og íþróttahús. Á Jaðarsbökkunum sjálfum eru fjölmargir knattspyrnuvellir sem njóta vinsælda á sumrin, auk sparkvalla við grunnskóla bæjarins sem nýtast allt árið um kring. Í júnímánuði í sumar fer fram Norðurálsmótið á Akranesi sem er eitt stærsta mót yngri flokka á landinu þar sem um 175 lið taka þátt frá fjölmörgum félögum. Ætla má að keppendur og gestir sem mæta til mótsins verði vel á fjórða þúsund.