Stóriðjuskóli Norðuráls settur í fyrsta sinn.

Fimmtudaginn 5. janúar var Stóriðjuskóli Norðuráls settur í fyrsta sinn á Grundartanga.

 

Norðurál rekur skólann í samstarfi við Fjölbrautarskóla Vesturlands á Akranesi og Símenntunarmiðstöð Vesturlands.  Námsskrá skólans er viðurkennd af mennta og menningarmálaráðuneytinu. Mjög mikill áhugi er meðal starfsmanna á hinum nýja skóla. Það eru 32 einstaklingar sem hefja nám núna í janúar en 79 sóttu um skólavist. Námið er þrjár annir og munu fyrstu nemendurnir útskrifast í apríl 2013. Það var Ragnar Guðmundsson forstjóri Norðuráls sem setti skólann formlega við hátíðlega athöfn á fimmtudag.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, undirritar samstarfssamining um Stóriðjuskálann með Atla Harðarsyni skólastjóra Fjölbrautarskóla Vesturlands og Ingu Dóru Halldórsdóttur forstöðumanni Símenntunarmiðstöðvarinnar

Senda á Facebook
Allt efni © Norðurál ehf.