Helguvíkur verkefnið
Norðurál reisir nýtt álver í Helguvík sem verður í fremstu röð í heiminum. Kerskálar og steypuskáli álversins verða innan sveitarfélagsins Garðs á nýrri iðnaðarlóð við Berghóla, en súrálsgeymar og hafnaraðstaðan á iðnaðarsvæðinu við Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Allur búnaður í álverinu verður samkvæmt bestu fáanlegri tækni og álverið verður eitt hið umhverfisvænsta í heimi. Markvisst hefur verið unnið að undirbúningi verkefnisins frá árinu 2004.
Fyrsta skóflustunga var tekin í júní 2008 og hefur síðan verið unnið við framkvæmdir á svæðinu. Uppsteypa á kerskálum er þegar hafin. Gert er ráð fyrir að gangsetning fyrsta áfanga hefjist fyrri hluta árs 2014.
Á rekstrartíma er gert ráð fyrir að um 600 ný störf verði til í álverinu og samtals hátt í 2000 störf sem tengjast alverinu og rekstri ess. Áætlað er að ríflega 4.000 ársverk þurfi við byggingu álversins og um 10.000 ársverk samtals í byggingur álversins og tengdra framkvæmda eins og orkumannvirkja, hafnaraðstöðu og annarrar beinnar þjónustu.
Hér geturðu séð bækling um Norðurál og samfélagið og verkefnið í Helguvík
 |
| Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu álveri Norðuráls í Hegluvík |
Iðnaðar- og hafnarsvæðið við Helguvík hentar afar vel fyrir álver. Hafnaraðstaða er mjög góð, stutt er í umhverfisvæna orku og öflug þjónustu-, byggingar- og þekkingarfyrirtæki eru í nágrenninu. Um er að ræða stórt vinnumarkaðssvæði og miklu skiptir aðgangur að vel menntuðu og hæfu vinnuafli á Suðurnesjum. Stuðningur við fyrirhugað álver er mikill í samfélaginu, ekki síst í kjölfar lokunar herstöðvarinnar á Miðnesheiði. Ljóst er að heimamönnum er mikill akkur í verkefninu enda yrði mikil aukning í framboði á fjölþættum og vel launuðum störfum sem kæmu í stað þeirra 700 starfa sem glötuðust með brottför varnarliðsins.
 |
| Vinnuvélar að störfum í mars 2009 |
Gert er ráð fyrir að draga verulega úr sjónrænum áhrifum fyrirhugaðs álvers með gerð jarðvegsmana og með gróðursetningu. Ennfremur verða byggingar og umhverfið útfært þannig að sem mest dragi úr ásýndaráhrifum.
