Saga fyrirtækisins
Norðurál ehf. er í eigu Century Aluminum sem er með höfuðstöðvar í Monterey í Kaliforníu í Bandaríkjunum. Century Aluminum rekur tvö önnur álver og á helmingshlut í því þriðja.
Century Aluminum festi kaup á Norðuráli í apríl 2004 en áður var fyrirtækið dótturfyrirtæki Columbia Ventures Corporation (CVC) sem er með höfuðstöðvar í Vancouver, Washington í Bandaríkjunum og er í eigu Kenneth D. Peterson Jr.
Árið 1995 ákvað CVC að reisa nýtt álver. Eftir að ýmsir möguleikar höfðu verið athugaðir var ákveðið að álverið yrði reist utan Bandaríkjanna. Í ágúst 1996 varð ljóst að Ísland væri besti kosturinn og var fyrsta skóflustungan að Norðuráli á Grundartanga tekin í apríl árið 1997. Aðeins 14 mánuðum síðar eða í júní 1998 var fyrsta kerið gangsett. Framleiðslugeta Norðuráls var í fyrsta áfanga 60.000 tonn á ári og sumarið 2001 var hún aukin í 90.000 tonn á ári með gangsetningu annars áfanga. Á árinu 2006 var framleiðslugetan aukin í 220 þúsund tonn og í 260 þúsund tonn árið 2007.
Norðurál ehf. er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi og er stofnkostnaður þess um 900 milljónir Bandaríkjadala og brúttóársvelta um 500 milljónir dollara. Með Norðuráli eru Íslendingar að breyta hluta þeirrar miklu orku sem Ísland býr yfir í útflutningsverðmæti og að ýta undir vistvæna orkunotkun í heiminum.