Kerskálar
Framleiðsla á áli í álverinu á Grundartanga fer fram í fjórum kerskálum. Í kerskálunum eru samtals 520 ker með forbökuðum kolaskautum. Kerin eru lokuð og tengd reykhreinsivirki sem hreinsar útblástur frá þeim. Í kerskálunum eru þjónustukranar sem þjóna kerunum. Kranarnir eru notaðir til að skipta um skaut, við áltöku og við áfyllingu álflúoríðs. Lokað þéttflæðikerfi flytur súrálið frá geymslusílói við höfnina til keranna í kerskálunum. Í kerunum eru brjótar sem brjóta gat á raflausnarskurnina svo að matarar, sem eru notaðir til að bæta bæði súráli og álflúoríði í kerin, komi efnunum frá sér. Rafmagnið sem fer um raflausnina í kerunum veldur því að súrál klofnar í súrefni og hreint ál. Kolaskaut í kerunum eyða súrefninu með bruna. Ferlinu í kerunum er stjórnað með VAW ELAS tölvustýrðu stjórnkerfi.
Ál fyrir ástina
Jón er huggulegur húsfaðir. Áður en Gunna kemur lúin heim úr vinnunni, er hann búinn að steikja lambakjöt á pönnu, baka kartöflur í ofni, sjóða grænmeti og töfra fram girnilega formköku í eftirrétt. Krásunum mun Gunna skola niður með svaladrykk sem okkar maður hefur hellt fagmannlega úr dósinni í glas á borðstofuborðinu. Jón hefur líka kveikt á sprittkertum og rétt áður en eiginkonan dettur inn úr dyrunum, skrúfar hann frá græjunum og stemningin er fullkomnuð.
Hvað ætli téðar athafnir Jóns á þessu fimmtudagskvöldi eigi sameiginlegt? Jú, fyrir utan að sýna umhyggju hans fyrir frúnni og tilþrif við eldamennskuna, gerðu allar það að verkum að hann komst í snertingu við ál. Hann notaði álpönnu við steikinguna, bakaði kartöflurnar í álpappír, gufusauð grænmetið í álpotti og kökuformið var úr áli. Þannig getur ál komið ótrúlega of við sögu daglegu lífi okkar, það er hreinlega út um allt. Heimilið er vitaskuld engin undantekning en álið á fáa keppinauta þegar kemur að umbúðum um mat, drykk og fleira af því tagi, enda eru álumbúðir fyrirferðarlitlar, léttar og sterkar og öll þekkjum við hve handhægt er að grípa til álpappírs og álbakka þegar grillað er. Þá eru rafeindatæki og búsáhöld úr áli algengari en margur gerir sér grein fyrir. Álið er potturinn og pannan.