Að ganga með Norðuráli
- Ganga er góð hreyfing sem allir geta stundað
- Reynum að ganga á hverjum degi, hvort sem við göngum út í búð eða upp á fjall. Það er hvort tveggja styrkjandi og hollt
- Á heilsuárinu erum við að hvetja fólk til að ganga með Norðuráli og um leið bæta heilsuna, komast í góðan félagsskap og ekki síst njóta útiveru í íslenskri náttúru
- Við ætlum að vera með leiðsögumenn og þjálfara sem munu leiða, aðstoða og þjálfa alla þá sem vilja vera með
- Öryggi er í fyrrirúmi þegar við göngum og þess vegna verðum við með allskonar fræðslu og leiðsögn fyrir þá sem verða með á árinu
Næstu skref
- Það er markmiðið okkar að vera með fjölbreytta verkefnaskrá – allt frá röltí um bæinn í það að fara upp á fjall og að komast upp á Hvannadalshnjúk. Finndu það sem hentar þér og taktu þátt!