Lífshlaupið 2012

Lífshlaupið hefst 1. febrúar og Norðurál tekur þátt í vinnustaðakeppninni. Nú þegar eru 10 lið skráð til leiks:

  • Besta liðið
  • C-vakt
  • C-vakt, Keppnis
  • Gorgeous
  • Kerstjórn Íslands
  • Langbesta liðið
  • Puma
  • Team Spandex
  • Valkyrjur
  • Víkingar

 

 

Hvernig tek ég þátt?

 

  • Þú getur tekið af skarið og myndað allt að 10 manna hóp – eða fundið einhverja sem vilja stofna hóp
  • Hópurinn kýs sér liðsstjóra
  • Liðstjóri skráir ykkur sem hóp heimasíðunni lifshlaupid.is og þið skráið ykkur sem einstaklinga undir hópnum (nema að hópstjóri taki það að sér) – ef þið viljið aðstoð leitið þá til Brian Daniel Marshall
  • Þar sem um vinnustaða keppni er að ræða – munið eftir að skrá hópinn undir Norðurál
  • Síðan þarf að skrá daglega niður hreyfinguna þína – nema að liðsstjórinn sjái um að gera það fyrir hópinn
  • Ef ekki er skráð daglega, má skrá aftur í tímann – bara að muna að skrá það hjá sér til að það gleymist ekki
  • Til að geta skráð hreyfingu þarf minnst 30 mín á dag - má skrá 3x10 mín = 30 mín eða 2x15 mín = 30 mín og svo auðvitað lengri tíma
  • Þetta er vinnustaðakeppni – við erum að keppa við fyrirtæki sem eru af sömu stærðargráðu og getum fylgst með árangri okkar gangvart keppinautum á hverjum degi
  • Spennandi að sjá hvernig Norðurál stendur sig þegar kemur til hreyfingar!

 

Áfram Norðurál!

 

Senda á Facebook
Allt efni © Norðurál ehf.