Sumarganga Norðuráls
Sumarganga Norðuráls er sumarverkefni heilsuársins þar sem áherslan er á útiveru, hreyfingu og ekki síst að eiga góða sameiginlega stund, hvort sem það er með fjölskyldu, vinum eða öðrum sem deila sömu áhugamálum. Á dagskránni í sumar verður meðal annars Samkomudagar á sex sunnudögum yfir sumarið þar sem boðið verður upp á frítt í sund, gönguferðir, fyrirlestra og fleira. Stefnt er á mikla þátttöku í sumarverkefninu ganga.is sem er á vegum UMFÍ og um leið ætlum við að styrkja mörg góðgerðamál. Síðan viljum við nota Sumargöngu Norðuráls til að upplýsa starfsmenn um ýmsa viðburði sem skipulagðir eru í sumar, t.d. Landsmót 50+ og unglingalandsmót UMFÍ, hlaupa viðburðir (Rkv. Maraþon...) og fl.
Bæklingur um Sumarganga Norðuráls 2011

Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt,
sem dropi breytir veg heillar skálar.
Þel getur snúist við atorð eitt,
aðgát skal höfð i nærveru sálar.
Svo oft leynist strengur í brjósti sem brast,
við biturt andsvar gefið án sakar.
Hve iðrar margt líf eitt augnakast,
sem aldrei verður tekið til baka.
- Einar Ben