Sund í sumar
Ætlar þú að nýta þér sundlaugar landsins í sumar, til að synda eða jafnvel bara sóla þig? Sundlaug.is er mjög góð síða með öllum þeim upplýsingum sem þú þarf um sundlaugar landsins.
Kíkið á sundlaug.is hér.
Hefur þú áhuga á að synda og svamla í sjónum? Á heimasíðu Sjósunds og sjóbaðsfélags Reykjavíkur er hægt að finna ýmsar upplýsingar um sjósund ásamt greinum sem sjósundkappar og fleiri skrifa tengt sjósundi og sjóbaði.
Kíkið á sjosund.is hér.
Hér koma nokkur létt og hagnýt ráð til að léttast og komast í betra form:
- Ef þú hefur 60 mínútur aflögu á viku til að hreyfa þig, þá er betra að skipta niður í fernt og hreyfa sig heldur fjórum sinnum í viku í 15 mínútur í senn í stað einu sinni í klukkustund.
- Ef markmið þitt er að brenna fitu ættirðu að æfa á lágum styrkleika í lengri tíma. Það þýðir að þú getur t.d. talað meðan þú gengur eða hleypur. Ef þú ert andstuttur ættirðu að hægja á þér.
- Prófaðu hinar ýmsu æfingar—þannig eykurðu fjölbreytnina og örvar líkama og sál.
- Hafðu lotuþjálfun eða áfangaþjálfun sem einn hluta af æfingaáætluninni. Dæmi um lotuþjálfun er ef þú brýtur 8 sundferðir niður í styttri búta t.d. 2x2 ferðir eða 4x1 ferð og hvílir á milli endurtekninga í 15-40 sek. Lotuþjálfun gerir þér einnig kleift að breyta hraðanum. Sem dæmi: Synda 6 ferðir hægt, 1 ferð hratt, synda 4 ferðir hægt og synda 1 ferðir hratt.
- Ef þú vilt komast í enn betra form, geturðu byrjað hægt og svo smám saman aukið hraðann. Með því að auka hraðann verður meiri pressa á hjarta og lungu og þannig styrkjast þessi líffæri.
- Byrjaðu hægt—og ef þú hefur ekki æft í einhvern tíma ættirðu að fara mjög hægt af stað. Ekki fara að synda 30 ferðir ef þú getur ekki hreyft þig næstu daga á eftir. Það er betra að byrja á stuttum vegalengdum t.d. í 10 ferðir fyrstu vikuna og svo smá auka við tímann. Gangi ykkur vel!

Aðgát skal höfð í nærveru sálar. - Einar Benediktsson