Loftgæði
Mælingar á útblæstri og losun frá verksmiðju Norðuráls
Mælingar Norðuráls á útblæstri eru gerðar samkvæmt mæliáætlun í starfsleyfi. Umhverfishópur Norðuráls stendur að útblástursmælingunum inni í verksmiðju. Loftkennt flúoríð,ryk og brennisteinsdíoxíð er mælt stöðugt í hreinsuðu kergasi í reykháfi og mánaðarmeðaltal reiknað samkvæmt starfsleyfi. Auk þess eru stöðugar mælingar gerðar á styrk flúors í rjáfri kerskála og árlega marktæk mæling á flúoríðum í ryki úr hreinsuðu kergasi í reykháf og í ræstilofti frá kerskála. Fylgst er með brennisteinsinnihaldi í eldsneyti og rafskautum. Einnig er fylgst með losun á föstum úrgangi frá verksmiðjunni. Norðurál skilar ársfjórðungslega skýrslu til Umhverfisstofnunar um niðurstöður þessara mælinga.