Mælingar

Norðurál einsetur sér að vera í fremstu röð við mælingar og áreiðaleika niðurstaðna.  Þeir staðir sem eru mikilvægastir gagnvart losun mældir með sjálfvirkum símælitækjum.  Mælitæki Norðuráls mæla loftkenndan flúor sem vetnisflúoríð, svifryk, brennisteinsdíoxíð og nituroxíð.


Þessi mælitæki eru öll yfirfarinn reglulega.  Til staðfestingar á áreiðanleika mælinga eru óháðir mæliaðilar fengnir til að gera samanburðarmælingar.  Komi fram mismunur er hann leiðréttur í samræmi við kvörðunarmælingar.  Einnig eru mælingarnar á  losun efna bornar saman við niðurstöður reiknilíkana.

 

Grunnur að fjölbreytni

Norðurál hefur skapað trausta atvinnu og átt verðugan þátt í að efla búsetu í nærliggjandi í sveitarfélögum. Hundruð heimamanna hafa fengið fjölbreytt og góð langtímastörf og búseta eflst í nærliggjandi sveitarfélögum. Þá hafa þjónustugreinar blómstrað og sem dæmi má nefna að um eitt hundrað fyrirtæki þjónusta að jafnaði rekstur Norðuráls á Grundartanga og annast þar ýmsar framkvæmdir. Jafnframt hefur fyrirtækið stutt við íþrótta- og menningarlíf í heimahéruðum.

Fjölbreytt flóra fyrirtækja í nágrannabyggðum þjónustar Norðurál á Grundar- tanga, svo sem vél- og blikksmiður, rafverktakar, pípulagningafyrirtæki, bifreiðaverkstæði, vélaleigur, jarðvinnuverktakar, hugbúnaðarfyrirtæki, trésmiðjur, hreingerningaþjónustur, saumastofur, rútufyrirtæki, hótel og veitingahús. Sami háttur verður hafður á aðkeyptri þjónustu í hjá Norðuráli Helguvík.

 

Allt efni © Norðurál ehf.