Innri mælingar

Losun efna í umhverfið út um skosteina þurrhreinsivirkjanna er mæld með afar fullkomnum mælitækjum.  Í útblæstrinum er mælt innihald brennisteinsdíoxíðs (SO2), vetnisflúoríðs (HF) og rykmagn.

Um það bil 1 % af þeim lofttegundum sem myndast í rafgreiningarkerjunum sleppa fram hjá afsogskerfinu og fara út um rjáfur kerskálanna.  Þessi losun er reiknuð út frá símælingu á styrk vetnisflúoríðs (HF) og loftflæði.  Hér eru einnig notuð mjög fullkomin mælitæki.
 
Niðurstöður símælinga eru notaðar til að meta áhrif starfseminnar á umhverfið og tryggja að hún sé innan ramma starfsleyfis.  Allar niðurstöður  eru birtar í grænu bókhaldi fyrirtækisins og eru einnig aðgengilegar almenningi á vef Umhverfisstofnunar.
 

Öll mælitæki sem notuð eru til að meta losun efna frá starfseminni í umhverfið eru athuguð með reglulegu millibili.  Aðilar óháðir fyrirtækinu framkvæma árlega samanburðarmælingar til að sannreyna niðurstöður mælinga.  Niðurstöður samanburðarmælinganna eru rýndar af Umhverfisstofnun sem er eftirlitsaðili með starfsemi Norðuráls á Grundartanga og útgefandi starfsleyfis.

 

 

Allt efni © Norðurál ehf.