Skýrslur
Hér til hliðar má finna ýmsar skýrslur svo sem eins og Græna bókhaldið, vöktunarskýrslun og ársfjórðungsskýrslur.
Eiginleikar áls
Eiginleikar álsins eru ótvíræðir þegar kemur að listsköpun enda efnið létt og meðfærilegt. Það er ekki síður sjónræni léttleikinn sem fangar ímyndunarafl listamannanna og hæglega má tengja það þyngdarleysinu. Áferð áls minnir um margt á himininn og það er engin tilviljun að inntak sumra listaverka úr áli tengist háloftunum og flugi. Álið verður þannig andhverfa jarðar.
Ál hefur lengi verið býsna vinsæll miðill erlendis og hefur t.d. orðið lista- mönnum að yrkisefni í hönnun tískufatnaðar, skartgripa, húsgagna, bifreiða og bygginga. Ál var ekki mikið notað í listum hér á landi áður en myndhöggvarar með Steinunni Þórarinsdóttur í broddi fylkingar tóku það í sína þjónustu fyrir fáeinum árum. Álverk hennar, einkum upplitsdjörf álmenni, hafa tekið sér bólfestu víða um lönd og aukið hróður lands og þjóðar.